Gúmmí skrikar á malbiki um dimma nótt,
borgin er böðuð rauðum bjarma.
Taktu vara á þér, myrki Móses hér í hverfið mættur er
til að hefna lítilmagnans harma.
Hann fellir aldrei tár, er tveggja metra hár
og ótal tungumál hann talar bæði og ritar upp á tíu.
Já, taktu vara á þér, myrki Móses hér í hverfið mættur er
og réttlætið mun ríkja hér að nýju.
Móses, já myrki Móses, já mildi Móses
stígur karlmannlegan dans.
Móses, já myrki Móses:
draumur kvenna og martröð þorparans.