Afsakið, má ég segja nokkur orð?
Þó ég sé ekki vanur að trana mér fram
þá get ég látið mig hafa það
í þeim tilgangi að koma að
að á dæmigerðum degi
er ég í meira stuði en hrökkáll,
handsterkari en Jón Páll,
hættulega viðsjáll – það er ég.
Hver?
Skírnarnafn Steingrímur, ættarnafn Teague.
Fagmannleg þjónusta og áhrifarík.
Takmarkað framboð en eftirspurn slík
að röðin nær út fyrir Stór-Reykjavík
...og það er alltígóðulagi með dæmigerðan dag.
Ég kann á dömunum handtökin:
Ég fæ öll síðustu rólóin.
Kaldastur jafningja klakanum á,
eitraðri og sætari en asesúlfam-k.
Já, þetta er dæmigerður dagur: eitt núll, stöngin inn.
Þú veist að ég er aðalsykurpabbinn þinn.