Gæfan er svo fallvölt
og gleðin er svo naum.
Veröldin er grimm og óárennileg.
Hamingjan er stopul,
mannskepnan er aum,
veðráttan er vond og verstur allra er ég,
en lítum framhjá því.
Þá held ég ekkert mæli móti því,
ekkert sem mig rekur minni í,
ekki neitt,
að slaka aðeins á
þó að veröldin sé fjandsamleg.
Við skulum taka lítinn Laugaveg
ertu með?
Ástin er svo harðhent,
það hendir okkur flest,
og virkilega grátlegt hvernig stundum fer.
Já, gæfan er oft fallvölt
og veröldin svo grimm,
en mér sýnist hún samt skárri á rúntinum með þér.